|
Vox academica er blandaður 40 manna kór. Upprunalega skipuðu kórinn fyrrum meðlimir í Háskólakórnum sem höfðu hug á að syngja saman áfram eftir að námi lauk. Nokkrir þeirra syngja enn með en hópurinn hefur stækkað allnokkuð undanfarin misseri og nokkur endurnýjun á sér stað í hópnum. Stofnandi og núverandi stjórnandi, Hákon Leifsson, hefur stjórnað kórnum lengst af en Egill Gunnarsson leysti hann af um tíma. Raddþjálfari nú er Jón Þorsteinsson og Elías Davíðsson hefur lengi verið ómetanlegur í hlutverki undirleikara á æfingum, aðstoðarstjórnanda og kórfélaga. Vox academica var stofnaður árið 1996 og er starfsárið 2007-2008 því hið tólfta. Metnaður og dirfska hefur frá upphafi einkennt starf kórsins, enda hefur hann frumflutt fjölda nýrra verka og tekist á við stórvirki úr klassískum tónbókmenntum. Á starfsárinu 2005-2006 gaf kórinn út geisladisk með jólasöngvum og hélt tónleika á Myrkum músíkdögum þar sem uppistaðan var nýleg íslensk kórtónlist. Aðalverkefnið var síðan Requiem e. Mozart. Að auki fór kórinn í skemmti- og tónleikaferð til Færeyja í lok maí. Á haustmisseri 2006 var áherslan á Messías e. Händel og Magnificat e. Bach , sem flutt voru á jólatónleikum í Grafarvoxkirkju föstudaginn 15. desember. Á vormisseri 2007 var æft helsta kórverk Brahms, Ein deutsches Requiem og flutt á tónleikum í Langholtskirkju 5.maí ásamt fjölmennri hljómsveit og einsöngvurunum Kristni Sigmundssyni og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Nokkur fjölgaði í kórnum á vormisseri og tóku rúmlega 40 meðlimir þátt í tónleikunum.
Kórinn æfir í húsnæði Söngskóla Sigurðar Demetz að Grandagarði 11. Á jólatónleikum 30. nóv 2007 voru flutt Gloria eftir Poulenc, Cantate de Noël eftir Honegger auk Hallelujakórsins úr Messíasi. Meginviðfangsefni á vori er Requiem eftir Verdi. Stefnt er að flutningi þess 5. apríl í Langholtskirkju. Kórinn getur bætt við sig fólki til að taka þátt í flutningi þessa stórvirkis og jafnvel framtíðarþátttöku. Eingöngu er leitað eftir kórvönu eða tónlistarmenntuðu fólki. Fyrirspurnir má senda á netfangið voxacademica@gmail.com
Netfang kórsins er: voxacademica@gmail.com Þangað má senda fyrirspurnir um hvaðeina annað sem lýtur að starfi kórsins.
|