|
Starfsemi Habilis snýst aðallega um útselda forritunarþjónustu fyrir stærri fyrirtæki. Habilis rekur einnig fasteignasölukerfið Húsið sem er lang útbreiddasta sölukerfi landsins. Fasteignavefurinn Habil.is sem nafn fyrirtækisins dregur nafn sitt af, er rekinn og þróaður hjá Habilis og er hann elsti fasteignavefur Evrópu. Lang flestar fasteignir fara fyrst á Habil áður en þær eru sendar á aðra fasteignavefi. Fjölmörg fyrirtæki nýta sér veflausnir Habilis og er þessi vefur dæmi um slíka lausn. Habilis hefur getið sér orð fyrir afar hagstæða verðlagningu og góða þjónustu við viðskiptavini sína.
|